11.03.1933
Neðri deild: 22. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1308 í B-deild Alþingistíðinda. (1591)

55. mál, lán úr Bjargráðasjóði

Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):

Þetta er svo einfalt mál, að ekki þarf langa framsögu. N, er sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. Með frv. er farið fram á, að veita megi lán úr Bjargráðasjóði, þegar hætta er á, að vöruflutningar teppist vegna hafíss eða óvenjulega vondrar veðráttu.