20.03.1933
Neðri deild: 31. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1321 í B-deild Alþingistíðinda. (1612)

89. mál, silfurberg

Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):

N. hefir orðið sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt. Hv. aðalflm. hefir fært fram rök fyrir því, að l. þessi hafa komið í veg fyrir, að menn reyndu að vinna silfurberg, og n. er sömu skoðunar og álítur ekki rétt að standa í vegi fyrir því, að menn reyni að nota sér þessar námur, þar sem ríkissjóður hefir ekkert skipt sér af þeim nú undanfarið og ekki líklegt, að hann muni láta vinna þær fyrst um sinn.