31.03.1933
Efri deild: 39. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1333 í B-deild Alþingistíðinda. (1662)

49. mál, Mið-Sámsstaði

Jón Baldvinsson:

Ég hefi hér kvatt mér hljóðs viðvíkjandi þingsköpum. Herra forseti, ég spurði áðan eftir hæstv. atvmrh. og ætlaðist auðvitað til, að hæstv. forseti myndi reyna eitthvað til þess að fá hæstv. ráðh. hingað í d. til svara við fyrirspurn, en sú von mín og tilmæli hafa ekki rætzt.