02.06.1933
Neðri deild: 92. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2903 í B-deild Alþingistíðinda. (169)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Það stóð líka í Alþýðublaðinu, að ég hefði gefið 10000 kr. eftir. Hvers vegna skýrir það rangt frá þessu? — Er ekki nær fyrir hv. þm., sem er í útgáfustjórn þess, að athuga, hvað í því blaði stendur, heldur en að skipta sér af frásögn blaða, sem honum koma ekkert við.