08.04.1933
Efri deild: 46. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1355 í B-deild Alþingistíðinda. (1734)
118. mál, einkaleyfi
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Þetta frv. fer fram á að veita sérstökum manni, Sveini Árnasyni yfirfiskimatsmanni á Seyðisfirði, einkaleyfi til að flytja út og selja á erlendan markað nýja tegund af saltfiski. Þó það kunni máske í fljótu bragði að líta svo út, að það sé ekki mikil ástæða til að fara þessa leið, þá vænti ég, að hv. dm. sannfærist um það, þegar þeir hafa kynnt sér þau rök, sem framfærð eru í bréfi frá viðkomandi manni, að nokkur ástæða sé til að verða við þessari ósk, því þess má vænta, að af þessari ráðstöfun geti leitt nokkra framför að því er snertir markaðsmöguleika fyrir aðalvöru sjávarútvegsins, saltfiskinn. Eins og menn munu hafa tekið eftir, þá er þetta einkaleyfi bundið við visst árabil, og það eru sett skilyrði, sem verður að uppfylla til þess að leyfið geti haldizt. Skilyrðin eru fyrst og fremst þau, að á árinu 1934 verki leyfishafi og flytji út minnst 300 smálestir af þessari fisktegund og greiði ríkissjóði 500 kr. árlegt gjald fyrir einkaleyfið. Að sjálfsögðu verður greitt af þessum fiski það venjulega útflutningsgjald, svo ekki verður hér um neina tekjurýrnun að ræða. Ég tel ekki ástæðu til að tefja tímann með því að fara að lesa upp þau rök, sem fram eru færð í bréfi Sveins Árnasonar, en þau eru í stuttu máli þau, að þessi maður hefir á undanförnum árum gert tilraun til þess að verka þessa tegund af saltfiski og hann telur sig nú vera kominn á það stig, að hann geti framleitt vöru, sem sé eftir kröfu neytendanna í viðkomandi löndum. En hinsvegar óttast hann, af því að þessi verkun er alveg ný og ekki alveg vandalaus og allmikið frábrugðin þeirri aðferð, sem áður hefir verið viðhöfð, að ef þessi verkun er frjáls fyrsta tímabilið, sem verið er að koma henni á fastan grundvöll, þá muni af því geta hlotizt tjón, þannig að varan verði ekki eins og neytendurnir óska eftir og tilraunin geti þá farið út um þúfur, af því að ekki hafi verið gætt nógu mikillar varúðar með verkun vörunnar strax í upphafi.
Ég verð að líta svo á, að æðimikið megi byggja á umsögn þessa manns, því mér er persónulega kunnugt um, að hann hefir mjög mikinn áhuga fyrir breyttum verkunaraðferðum á okkar sjávarútvegsafurðum og hefir sýnt í því efni mjög mikinn áhuga og lagt í það talsvert fé. Og ég hygg, að mér sé óhætt að segja, að hann sé eini fiskimatsmaðurinn á landinu, sem hefir haft opin augu fyrir því, að fjölbreytni á þessari framleiðsluvöru væri okkur lífsnauðsyn. Ég skal taka það fram, að stjórn Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda hefir mælt með því, að þetta leyfi verði veitt, og það virðist vera nokkur trygging fyrir því, að hér sé verið á réttri leið. Sjútvn. hefir athugað málið og leggur einróma til, að frv. gangi fram eins og það liggur fyrir.