14.03.1933
Neðri deild: 24. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (1740)

86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs

Forseti (JörB):

Í ráði er, að þessi útvarpsumr. fari fram um þriggja klukkustunda skeið, eða til kl. 12. Gera má ráð fyrir, að einnig verði útvarpað umr. um þetta mál annað kvöld. Flokkunum er ætlaður jafn ræðutími til umráða, og mun sá mismunur, sem fram kann að koma í kvöld á ræðutíma þeirra, verða jafnaður annað kvöld.