03.06.1933
Neðri deild: 94. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2905 í B-deild Alþingistíðinda. (176)

Undirbúningur kosningalaga

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Út af orðum hv. 2. þm. Reykv. skal ég taka það fram, að ef það kemur í minn hlut að undirbúa þetta mál, þá skal ég reyna að vera svo fljótt búinn með það, að flokkunum gefist tækifæri til þess að athuga það fyrir þing og geti borið sig saman við stj. um þær breyt., sem þeir kynnu að óska. Ég vona, að þessi yfirlýsing nægi hv. þm.