28.03.1933
Efri deild: 36. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1583 í B-deild Alþingistíðinda. (1829)

86. mál, samkomulag um viðskiptamál milli Íslands og Noregs

Forseti (GÓ):

Ég vil láta hv. þm. vita, að þeir hafa talað nokkuð fram yfir sinn tíma. Hv. 1. landsk. talaði 4 mín. fram yfir í fyrra skiptið og 2 í seinna skiptið og á því 9 mín. eftir. Hv. 2. landsk. talaði 4 mín. fram yfir í fyrra skiptið og 6 í síðara skiptið og á því eftir 5 mín. Hæstv. forsrh. talaði 2 mín. fram yfir og hæstv. atvmrh. 5, svo að þeir eiga eftir 8 mín. Vildi ég ekki trufla menn í fyrri ræðunum, en læt þá nú vita, hvernig þetta stendur.