31.05.1933
Efri deild: 85. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í D-deild Alþingistíðinda. (1875)

158. mál, sútunar- og skófatnaðarverksmiðju

Jónas Jónsson:

Ég vildi aðeins beina því til hæstv. stj. um leið og hún fær málið til meðferðar, að svo framarlega, sem það kemur í ljós, að lítill markaður sé í vændum fyrir þessa vörutegund, þá hugsi hún sig tvisvar um áður en hún tekur á sig ábyrgð fyrir menn, sem hafa máske ekki áttað sig á því, hve litlir möguleikar eru fyrir hendi.