03.06.1933
Efri deild: 91. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2908 í B-deild Alþingistíðinda. (188)

Starfslok deilda

a. Í efri deild:

Á 91. fundi í Ed., 3. júní, að lokinni dagskrá, mælti

forseti (GÓ): Áður en lokið er síðasta fundi hv. þd. á þessu þingi, sem mun vera næstlengsta Alþingi, sem háð hefir verið, og einnig afkastamikið um afgreiðslu mála framar venju, vil ég þakka hv. þdm. góða samvinnu á þessu þingi og árna þeim allra heilla og utanbæjarþingmönnum góðrar heimferðar.