03.06.1933
Neðri deild: 94. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2908 í B-deild Alþingistíðinda. (191)

Starfslok deilda

forseti (JörB):

Verkefni þessa fundar munu ekki önnur vera eftir en deildarslit. Forseti Sþ. mun eins og venja er til gefa þinginu skýrslu yfir störf þess, og sleppi ég því. Ég vil þakka öllum hv. þdm. fyrir einkargóða samvinnu og hvað þeir hafa verið mér ljúfir í öllu samstarfi á þessu þingi; ég vil ennfremur óska þeim góðrar framtíðar og utanbæjarþingmönnum góðrar ferðar og góðrar heimkomu.