12.04.1933
Efri deild: 49. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2872 í B-deild Alþingistíðinda. (20)

Afgreiðsla þingmála

Jón Baldvinsson:

Ég hefi engan dóm lagt á það, hvor af hæstv. forsetum hefir réttara fyrir sér í þessu efni. Ég vildi aðeins benda á þennan mismunandi skilning á þingsköpunum. Önnurhvor aðferðin hlýtur að vera röng, þar sem þær stangast.