07.04.1933
Neðri deild: 47. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1703 í B-deild Alþingistíðinda. (2034)

138. mál, meðalalýsi

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Ég lét þess getið við 2. umr., að það gæti komið til mála, að brtt. kæmu fram við frv., og liggja þær nú fyrir á þskj. 354. Þessar brtt. eru bornar fram eftir ósk og í samráði við hæstv. dómsmrh. N. leit svo á, að þær væru eftir atvikum til bóta, og þær raska í sjálfu sér ekki efni frv., svo að n. í heild sinni fylgir þessum brtt.