28.03.1933
Neðri deild: 38. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1745 í B-deild Alþingistíðinda. (2081)

107. mál, happdrætti fyrir Ísland

1) TrÞ:

Ég vil gera þá grein fyrir atkv. mínu, að ég lít svo á, að hér sé um hliðstætt að ræða við hin fornu ákvæði um reka, og hafi háskólinn markað sér þessa leið til tekjuöflunar fyrir sig, og segi ég því nei.