26.04.1933
Neðri deild: 58. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1769 í B-deild Alþingistíðinda. (2147)
128. mál, eignarnámsheimild á landi við Skerjafjörð
Héðinn Valdimarsson:
Ég sé ekki, að í frv. sé farið fram á að leggja þetta land undir lögsagnarumdæmi Rvíkur. Þetta er því á röngum forsendum byggt, sem hv. þm. G.-K. var að tala um. Hér er aðeins um eignarnámsheimild að ræða. Það liggur á bak við þetta almenn ósk íþróttamanna hér í bæ, og ég hygg, að allir fulltrúar bæjarstj. séu því samþykkir.