26.04.1933
Neðri deild: 58. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1769 í B-deild Alþingistíðinda. (2148)
128. mál, eignarnámsheimild á landi við Skerjafjörð
Ólafur Thors:
Ég hefi skilið frv. svo, að það ætti að leggja landið undir Reykjavík. Það getur verið, að formlega sé ekki ástæða til að leggja þetta fyrir viðkomandi hreppsnefnd og sýslunefnd. En þegar búið er að taka þetta land eignarnámi og gera að baðstað, þá þekki ég illa hógværð Reykvíkinga í þessu efni, ef ekki kemur á eftir sem sjálfsagður hlutur, að bærinn eignist landið, þ. e. a. s., að landið verði innlimað í bæinn.
Það má segja, að formlega sé rétt, þegar að því kemur, þá sé þessu máli beint til hreppsnefndar og sýslunefndar. Ég get því sagt hv. frsm. það, að ég held, að engin ástæða sé til þess að fara fram á, að málið verði tekið út af dagskrá.