24.04.1933
Neðri deild: 56. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1813 í B-deild Alþingistíðinda. (2245)

154. mál, áveitu á Flóann

2) HJ:

Af því að ég get ekki fylgt þeim hundavaðshætti, sem viðhafður var við afgreiðslu þessa máls, og tel enda, að það sé gert á mjög óheppilegum grundvelli, þá get ég ekki fylgt þessu frv. eins og það liggur fyrir, en vonast eftir að fá tækifæri til að leiðrétta það, þegar það kemur aftur frá Ed., og segi því nei.

Á 55. fundi í Ed., 25. apríl, var frv. útbýtt eins og það var samþ. við 3. umr. í Nd. (A. 436).