21.02.1933
Neðri deild: 6. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í D-deild Alþingistíðinda. (2335)
38. mál, kreppunefnd
Flm. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:
Ég ætla, að ég muni það rétt, að hæstv. fors.- og fjmrh. hafi kveðið svo að orði í gær, þegar hann lagði fram fjárl. og gaf skýrslu um liðið ár, að höfuðverkefni þessa þings væri, að hans dómi, að létta bændum og verkalýð kreppuna, og í sambandi við það að reyna að ná sem beztum viðskiptasamningum við önnur lönd og auka sölu afurða hér innanlands. Ég er hæstv. ráðh. fyllilega sammála um, að a. m. k. annað höfuðverkefni þessa þings sé að létta landsmönnum kreppuna og hjálpa þeim til að þola erfiðleika hennar. Það er enginn kaupstaður eða kauptún hér á landi, sem ekki á tugi, hundruð eða jafnvel þúsundir atvinnulausra eða atvinnuskortandi manna. Naumast finnst það sveitarfélag, þar sem ekki hefir orðið halli á búrekstrinum síðasta ár. Og ekki eru fá dæmi til þess, að tekjur bænda hafi ekki hrokkið til greiðslu vagta og afborgana gamalla og nýrra skulda. Ríkisstj. virðist hafa gert sér grein fyrir, að þörf væri sérstakra ráðstafana vegna kreppunnar. Á seinasta ári var skipuð n. til þess að safna gögnum um fjárhag bænda og leggja till. til úrlausnar erfiðleikunum fyrir þing og stj. Eftir því sem mér er sagt, hefir n. þessi unnið talsvert starf, og væntanlega kemur skýrsla n. fyrir þingið og almenningssjónir. En því undarlegra er það, þar sem ríkisstj. hefir með réttu séð nauðsyn á að hjálpa bændum, að hún skuli ekki hafa komið auga á þörf verkafólksins og smærri atvinnurekenda við sjóinn, sem þó er engu minni en í sveitum landsins. Ég tel víst, að fyrir þetta þing verði lagðar margar till. til aðgerða í þessum efnum. N. þær, sem fyrir eru í d., munu flestar, ef að líkindum lætur, hafa nóg að starfa við þau mál, sem eftir eðli sínu heyra réttilega undir þær. Til þess að létta störf þingsins flytjum við Alþfl.fulltrúarnir till. um, að stofnuð verði sérstök n. og til hennar verði beint kreppumálunum. Vona ég, að hv. þdm. geti orðið sammála um þetta, þar sem hæstv. forsrh. hefir lýst yfir því, að kreppumálin séu höfuðverkefni þingsins.