13.03.1933
Sameinað þing: 5. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í D-deild Alþingistíðinda. (2396)

37. mál, riftun kaupa á Reykjahlíð í Mosfellssveit

1) HV:

Þar sem hæstv. forseti hefir neitað að verða við till. okkar að bera fyrst upp vantraust okkar Alþfl.manna, en þessi brtt., sem er borin fram við brtt. hv. 1. þm. S.-M., liggur nærri vantrausti, þá kýs ég heldur, ef brtt. hv. 1. þm. S.-M. verður samþ., að það sé með þeim hætti, sem þessi brtt. fer fram á. Segi ég því já, þótt ég sé í sjálfu sér mótfallinn aðalbreytingunni.