16.05.1933
Efri deild: 73. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í D-deild Alþingistíðinda. (2417)

195. mál, Þingvallaprestakall

Flm. (Guðrún Lárusdóttir):

Ég vil taka það fram, að fyrir mér vakti það eitt með þessari till. að fá d. til að skora á stj. að auglýsa prestakallið á Þingvöllum, sem nú er laust. Læt ég mig það litlu skipta, hvernig það verður gert, sem ég álít, að með þurfi til þess að laga það, sem laga þarf í þessum efnum, ef till. aðeins verður samþ. í þessari d.