06.04.1933
Efri deild: 44. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1847 í B-deild Alþingistíðinda. (2601)
133. mál, lokunartími sölubúða
Jakob Möller:
Eins og kunnugt er, eiga þessi 1. um lokunartíma sölubúða aðeins við kaupstaði. Nú vita allir, að mörg þorp hér á landi, sem ekki mundu falla undir þessi l., eru jafnstór og sumir kaupstaðirnir, og gæti því verið alveg sama ástæða til þess að láta l. líka ná yfir þau. Ég vil beina því til hv. n., hvort hún vilji ekki taka þetta atriði til athugunar milli umr., hvort ekki sé rétt að víkka svæði 1., svo að heimildir þeirra næðu víðar en til kaupstaða. Úr því að löggjöfin er nú einu sinni búin að viðurkenna þörf slíkra ráðstafana, er rétt að láta þær ná sem víðast.