06.04.1933
Efri deild: 44. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1847 í B-deild Alþingistíðinda. (2602)

133. mál, lokunartími sölubúða

2602Frsm. (Pétur Magnússon):

Ég tel rétt að taka þessa bendingu frá hv. 1. þm. Reykv. til greina, og geri ég ráð fyrir, að allshn. muni verða við þeim tilmælum að athuga þetta milli 2. og 3. umr. En ég geri ráð fyrir því, að mest sé þörfin á slíkum l. hvað kaupstaðina snertir, því að víða í smærri kauptúnum er atvinnurekstri talsvert öðruvísi fyrir komið og ekki eins bundinn við vissa tíma og í kaupstöðunum.