29.04.1933
Neðri deild: 61. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1893 í B-deild Alþingistíðinda. (2735)
161. mál, tollalög
Jón Auðunn Jónsson:
Ég vil aðeins benda á það, að hvorki hæstv. fjmrh. né hv. frsm. hafa treyst sér til að mótmæla því, að tollhækkun þessi muni draga úr neyzlu og þar með draga úr tolltekjum ríkissjóðs af þessum vörutegundum. Ég efast meira að segja um, að tekjur ríkissjóðs vaxi nokkurn hlut við þessa hækkun, vegna minnkandi neyzlu. En hitt er víst, að neytendur verða að greiða hærra verð fyrir vöruna. Er þá reikningsdæmið einfalt. Neytendur greiða meira fyrir ölið og kaffibætinn vegna hækkaðs tolls. En ríkissjóður fær þó eigi meiri tolltekjur af því, vegna minnkandi neyzlu. Þessir 4 aurar á flösku af öli eru ekkert lítil tollhækkun. Svo tekið sé dæmi af hvítölinu, sem nú mun vera selt á 20 aura potturinn í 5 potta ílátum, þá nemur tollurinn nær því jafnmiklu og útsöluverðinu nú. Verð þess myndi því tvöfaldast.