07.04.1933
Neðri deild: 47. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í C-deild Alþingistíðinda. (3113)

71. mál, takmörkun eða bann innflutnings á óþörfum varningi

Frsm. meiri hl. (Hannes Jónsson):

Ég hélt, að umr. hefði verið lokið um þetta mál, en hv. 3. þm. Reykv. fær nú orðið til að tala fyrir því, að málið fái að ganga til 3. umr. (Forseti: Aðeins um atkvgr.). Ég ætla líka að tala um atkvgr. Ég vænti, að hv. d. láti málið ekki ganga til 3. umr., því að það er alls ekki nauðsynlegt til þess, að samkomulag geti orðið um lausn þessa máls. Hér þarf ekkert annað en að breyta reglugerðinni, og gerir ekkert til, þó að l. gildi áfram; svo að það er engu spillt, þó að þetta frumvarp verði fellt.