10.05.1933
Efri deild: 68. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 398 í B-deild Alþingistíðinda. (318)

1. mál, fjárlög 1934

Halldór Steinsson:

Ég vil mótmæla þeim orðum hæstv. forseta, að hér sé um nokkurt verkfall að ræða. Það hefir verið farið fram á það við hann, að hann frestaði fundi. Hefir slíkt oft verið gert áður, og ætti hæstv. forseti eins að geta gert það nú, án þess að láta hnútur fylgja.