08.05.1933
Efri deild: 66. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2078 í B-deild Alþingistíðinda. (3310)
117. mál, barnavernd
Guðrún Lárusdóttir:
Mér er ekki vel kunnugt, hvernig kvikmyndaskoðun er háttað, en veit þó, að nm. skipta því milli sín, 2 í hvert skipti. Ég held þó, að þær myndir, sem ekki eru leyfðar, séu ekki þess verðar, að börn sjái þær. Ég veit, að bíóeigendur hafa kvartað. En ég veit líka, að barnaverndarn. hefir ekki viljað banna sýningu mynda nema full ástæða væri til. Það eru hinar svokölluðu cowboymyndir, er oft sýna megnasta hrottaskap, sem hafa verið bannaðar. Að vísu er ekki víst, að þær séu verri en sumar myndir aðrar, sem hafa verið sýndar, en þó hafa aðrar myndir ekki verið bannaðar. Ég hefi það líka fyrir satt, að slíkar myndir séu að falla úr gildi erlendis, enda ekki fagurt að sýna allan þann gauragang, ólæti og jafnvel oft misþyrmingar á dýrum, sem sést á þessum myndum. Þessar myndir eru víst ódýrar og því hefir þótt freistandi að flytja þær hingað. Ég tel þó uppástungu hv. 1. þm. Reykv. góða. Hún myndi leiða til meira samræmis um framkvæmd þessarar skoðunar.
Viðvíkjandi brtt. allshn. vil ég skýra frá því, að maður, sem stendur framarlega í barnaverndarspursmálinu, hefir tjáð mér, að heimildin um að banna börnum opinbera blaðasölu muni ekki verða notuð, nema í allra nauðsynlegustu tilfellum. Annars er ég hrædd um, að samþ. brtt. muni tefja framgang þessa máls, og kýs því helzt, að frv. verði samþ. óbreytt eins og það kom frá hv. Nd.