13.05.1933
Efri deild: 71. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2189 í B-deild Alþingistíðinda. (3411)

167. mál, kreppulánasjóð

Jón Jónsson:

Það var út af þessu síðasta, sem hv. 2. landsk. sagði. Ég get ekki játað, að ég hafi sýnt iðnaðarmönnum neina óvináttu í fjárveitingum. Við lögðum ekki til, að niður yrði felldur utanfararstyrkur, heldur að honum yrði ráðstafað af sérstakri nefnd og býst ég við, að við komum með till. um það við 3. umr.