26.05.1933
Efri deild: 81. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2208 í B-deild Alþingistíðinda. (3426)

167. mál, kreppulánasjóð

Frsm. (Jón Jónsson):

Ég verð að játa, að ég hefi ekki nákvæmlega athugað þessar till., sem komu fram. N. hefir ekki komið með neinar till. og satt að segja lítið talað um þetta. Ég vildi því gjarnan fara þess á leit við hæstv. forseta, að málinu verði frestað a. m. k. þangað til á kvöldfundi, eða þá tekið út af dagskrá.