08.05.1933
Efri deild: 66. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2286 í B-deild Alþingistíðinda. (3590)

77. mál, virkjun Sogsins

Frsm. minni hl. (Jón Þorláksson) [óyfirl.]:

Ég á hér brtt. á þskj. 559, sem er ekki annað en lagfæring á orðalagi, sem brenglaðist í frv. við það, að brtt. við 3. gr. þess var samþ. við 2. umr. Hér er því ekki um neina efnisbreyt. að ræða. Um brtt. á þskj. 571 ætla ég að geyma mér að tala, þangað til flm. hafa gert grein fyrir henni, ef þeim þykir það þá ómaksins vert.