08.05.1933
Efri deild: 66. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2287 í B-deild Alþingistíðinda. (3592)
77. mál, virkjun Sogsins
Magnús Torfason:
Ég hefi hingað til ekkert lagt til þessa máls, þó snertir það allmjög það kjördæmi, sem ég er fulltrúi fyrir, og það er því víst, að Árnesingar fylgja því með mikilli athygli.
Mál þetta hefir verið lengi á döfinni, og hafa ýmsar botnveltur orðið á því. Það hefir verið járnbrautarmál nr. 2. En nú virðist vera kominn skriður á það, þar sem tveir aðalstjórnmálaflokkarnir hér í Rvík hafa tekið höndum saman um að beina því áfram. Að vísu hefir maður orðið að hlusta á sér til leiðinda, að samkomulagið á milli formanna flokkanna hefir ekki verið eins gott og við hefði mátt búast. En það verður að skoða þessar bréfkúlur, sem þeir hafa sent á milli sín, frekar sem eftirhreytur gamalla glettinga en alvöru, því að óreyndu dettur víst engum í hug, að hér sé um leikaraskap að ræða í sambandi við það, að komið sé nærri kosningum.
Ég get ekki annað en lýst ánægju minni yfir því, að mál þetta skuli vera komið á þennan rekspöl, því að nú verður maður að vænta þess, að ekki liði langt þangað til hafizt verði handa um framkvæmdir. Þess vegna fylgi ég því eindregið og lít svo á, að ekki megi gera neitt því til tálmunar, og jafnframt, að ekki megi setja neitt það í frv., sem bendi til þess, að ein lausn þess sé nær en önnur, á meðan rannsókn hefir ekki farið fram að fullu og öllu.
Í þessu sambandi virðist mér rétt að geta þess, vegna hinna væntanlegu flutninga vegna virkjunarinnar, að það hefir komið á daginn, að öll þungavara, sem fara á austur yfir fjall, fæst miklu ódýrari frá Eyrarbakka heldur en héðan frá Rvík, sakir þess, að flutningskostnaðurinn er miklu minni frá Eyrarbakka. Þannig hefir t. d. allt efnið í Markarfljótsbrúna verið flutt upp til Eyrarbakka, af því að flutningur þaðan er miklu ódýrari en frá Rvík. Ég tek þetta fram til athugunar fyrir þá menn, sem um það fá að fjalla síðar. Ég álít, að hér gæti verið um ekki óverulegan sparnað að ræða, sérstaklega ef Neðra-Sogið yrði tekið til virkjunar, og jafnvel hvort sem er.