29.03.1933
Efri deild: 37. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í C-deild Alþingistíðinda. (3604)

36. mál, útflutninsgjald af landbúnaðarafurðum

Halldór Steinsson:

Það má vera, að mér komi þessi deila ekki mikið við, en þó hygg ég, að hún komi mér eins mikið við og hv. 5. landsk. Ég skal hiklaust taka undir það með honum, að forseti megi ekki sýna hlutdrægni í þessum efnum, en ég vil jafnframt mótmæla því harðlega, að hann hafi gert það hvað okkur sjálfstæðismenn snertir.