29.05.1933
Efri deild: 83. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2312 í B-deild Alþingistíðinda. (3683)

173. mál, óréttmæta verslunarhætti

3683Frsm. (Jónas Jónsson):

Nefndin hefir komið sér saman um að mæla með frv. óbreyttu, nema hvað einn nm. hefir sérstöðu. N. taldi frv. geta orðið til nokkurs gagns í því að efla verzlunarsiðgæði. Meiri hl. n. taldi ekki rétt að fella inn í frv. þá grein, sem Nd. felldi niður, með því að hann leit svo á, að í henni fælist ákvæði til að tryggja óeðlilega hátt verðlag. Vænti ég því þess, að frv. verði samþ. hér óbreytt.