19.04.1933
Efri deild: 51. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2330 í B-deild Alþingistíðinda. (3718)

93. mál, ábúðarlög

Frsm. (Jón Jónsson):

Það hafa engar brtt. komið fram við þetta frv. við þessa umr., svo að þess vegna þarf ekki mikið um það að ræða; en ég vil geta þess, að nú við prentunina hefir láðst að leiðrétta eina tölu í 12. gr., 2. mgr., sem nú er orðin. Það á að standa 11. gr. 1. mgr., en stendur nú 11. gr. 2. mgr. Ég hefi minnzt á þetta við skrifstofustjóra, en hefi ekki séð ástæðu til að flytja brtt. um þetta efni. Vona ég, að þetta verði tekið til athugunar, ef frv. verður prentað upp aftur. Að öðru leyti hefi ég ekki annað að segja fyrir n. hönd.