27.05.1933
Neðri deild: 84. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í B-deild Alþingistíðinda. (383)

1. mál, fjárlög 1934

Fors- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég get tekið undir flest af því, sem hv. frsm. hefir sagt og þarf ekkert að endurtaka. Það verða á sama hátt tilmæli stj. eins og n., að brtt. verði ekki samþ. Ég tel þrátt fyrir allt heppilegast, úr því sem komið er, að fjárl. nái nú í dag afgreiðslu.