25.03.1933
Neðri deild: 36. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2476 í B-deild Alþingistíðinda. (4010)

126. mál, tékka

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Þetta frv. er fram komið af sömu ástæðu og frv. um víxla, sem afgr. var næst á undan. Það er eins með tékka og víxla, að það eru verðbréf, sem ganga kaupum og sölum milli landa, og þess vegna er nauðsynlegt, að lög þau, sem um þá gilda, séu hin sömu í sem flestum nágrannalöndum.