02.06.1933
Efri deild: 88. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2530 í B-deild Alþingistíðinda. (4113)
211. mál, lántöku erlendis
Jónas Jónsson:
Af því að hæstv. fjmrh. er hér viðstaddur, vildi ég heyra álit hans um þetta lán. Í fyrsta lagi, hvernig lántakan hafi verið undirbúin og hvar lánið er tekið. Í öðru lagi, undir hvaða kringumstæðum stj. hugsar sér að nota lánið, og í þriðja lagi, hvort stj. hugsar sér, að hægt sé að greiða lánið upp á árinu, svo að það verði ekki að fastaláni. Ég veit, að stj. gerir það ekki að gamni sínu að taka slíkt lán, en það er hættulegt, ef það skyldi enda með föstu láni, eins og sum bankalánin.