08.05.1933
Neðri deild: 68. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2539 í B-deild Alþingistíðinda. (4120)

186. mál, sala mjólkur og rjóma

Pétur Halldórsson:

Ég vildi gjarnan óska þess, að þetta frv. væri sent til bæjarstjórnar Rvíkur til umsagnar, áður en það væri afgr. sem l. frá Alþingi. Ég vildi beina þeirri ósk til landbn., sem væntanlega fær frv. til meðferðar, að hún gefi bæjarstj. Rvíkur og Hafnarfjarðar tækifæri til að koma með sína skoðun áður en n. gengur frá sínu nál. um málið.