18.02.1933
Neðri deild: 4. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 327 í C-deild Alþingistíðinda. (4181)
27. mál, fiskframleiðslu ársins 1933
Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Hinn 5. des. f. á. voru gefin út bráðabirgðalög samhljóða þessu frv., sem er lagt fyrir Alþingi samkv. 23. gr. stjskr. Um ástæðurnar fyrir útgáfu þessara bráðabirgðalaga get ég væntanlega látið mér nægja að vísa til fskj. þess, sem prentað er með frv., og að svo komnu máli tel ég ekki þörf á að gera annað en benda á, að með því að lög þau, sem frv. er endurprentun af, eiga ekki að gilda lengur en til 1. apríl næstkomandi, þarf þingið í raun og veru ekki að taka afstöðu til frv., nema það vilji annaðhvort lengja eða stytta lífdaga laganna, en um það gerir ég að svo stöddu enga tillögu.
Þegar þessi umr. er á enda, óska ég, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.