18.02.1933
Neðri deild: 4. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 327 í C-deild Alþingistíðinda. (4182)
27. mál, fiskframleiðslu ársins 1933
Haraldur Guðmundsson:
Allt fram á síðustu tíma hefði það ekki þótt lítil tíðindi, að gefin væru út l. um einkasölu á saltfiski með þeim hætti, að ráðh. og konungur gæfu heimild til þess. Og þegar þess er gætt, að þeir, sem sömdu þessi l., voru einmitt mennirnir, er harðast hafa barizt gegn slíku skipulagi, þá smækka tíðindin ekki við það. Skal ég ekki að þessu sinni fjölyrða um saltfiskverzlun okkar Íslendinga, en geymi mér það til síðari umr. málsins. Hv. þdm. er kunnugt, að fyrir ekki löngu síðan var í útvarpinu - og sjálfsagt í blöðunum líka - birt áskorun frá Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda til saltfiskútflytjenda að láta Sölusambandinu í té upplýsingar um það, hvort þeir vildu fela því umboð til að selja fisk sinn á þessu nýbyrjaða ári. Ég veit ekki, hvort komið er svo mikið af svörum, að Sambandið geti um það sagt, hvort það muni halda áfram svipaðri sölustarfsemi og í fyrra, því að í áskoruninni var þess getið, að það væri undir undirtektunum komið, hvort Sölusambandið héldi áfram. Vil ég nú mælast til þess, að hæstv. dómsmrh. upplýsi, hvort svörin við þessari áskorun eru komin og hvort líkindi megi þá telja til, að þegar bráðabirgðal. falla úr gildi 1. apríl, verði haldið áfram svipuðu skipulagi og seinasta ár, þ. e. a. s. að næstum öll saltfiskverzlunin verði í höndum Sölusambands ísl. fiskframleiðenda. Þykir mér fara vel á því, að hæstv. dómsmrh. svari þessu nú við 1. umr. málsins.