07.03.1933
Neðri deild: 18. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í C-deild Alþingistíðinda. (4284)

54. mál, vörslu opinberra sjóða

Jón Auðunn Jónsson:

Ég vil aðeins leyfa mér að benda á, að í skipulagsskrám sumra sjóða er ákvæði um, hvernig ávaxta skuli sjóðina. Í sveitum eru t. d. sjóðir, sem ákveðið er, að lána eigi út gegn 1. veðrétti í jörðum, en mér finnst, að ákvæði 2. gr. frv. komi í bága við þetta. Á þetta vildi ég mega benda þeirri hv. n., sem fær málið til meðferðar.