20.05.1933
Neðri deild: 79. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2645 í B-deild Alþingistíðinda. (4323)

198. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Forseti (JörB):

Það hefir ekki verið föst venja að byrja atkvgr. jafnan í byrjun næsta fundar eftir að þeim var frestað. En hvað snertir atkvgr. um 8. málið á dagskránni, þá hefi ég verið beðinn að fresta henni. Svo ekki velti á tilviljun um afgreiðslu þessara tveggja mála, 3. og 8. máls á dagskránni, þá mun ég fresta atkvgr. um þau fram yfir helgi.