23.05.1933
Neðri deild: 81. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2646 í B-deild Alþingistíðinda. (4331)

198. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Pétur Ottesen:

Ég vil fara fram á það við hæstv. forseta, að hann taki málið af dagskrá, þar sem nál. um það er á leiðinni. Þetta er svo mikið mál, að þess verður að krefjast, að menn fái að athuga nál. eina dagstund.