23.05.1933
Neðri deild: 81. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2646 í B-deild Alþingistíðinda. (4334)

198. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Pétur Ottesen:

Út af orðum hv. þm. Vestm. vil ég benda á, að ég hefi fært óyggjandi rök að því, að hér er verið að fara inn á stórhættulega braut og skaðlega landsbúum, og vona ég því, að hæstv. forseti meini mönnum ekki að athuga þetta nál., sem þeim barst ekki í hendur fyrr en nú í fundarbyrjun.