02.06.1933
Efri deild: 87. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2706 í B-deild Alþingistíðinda. (4415)

198. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Jón Þorláksson:

Ég vildi aðeins lýsa því yfir, að ég get fallizt á brtt. hv. 2. þm. Árn., og mun ég greiða henni atkv. mitt í trausti þess, að sú breyt. verði til þess að draga svo úr því kappi, sem virðist vera um málið í hv. Nd. frá ýmsum hliðum, að ekki verði í þeirri hv. d. synjað um, að málið nái fram að ganga.