16.05.1933
Neðri deild: 75. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2780 í B-deild Alþingistíðinda. (4502)
59. mál, stjórnarskipunarlög
Frsm. meiri hl. (Bergur Jónsson):
Ég sé ekki ástæðu til að gera miklar aths. út af ræðu hv. 3. þm. Reykv. Hann hneykslaðist á því, að ég benti á England og Þýzkaland sem dæmi, þar sem þingræðið hefði farið forgörðum í öðru landinu, en stæði á traustum grundvelli í hinu landinu. Það voru ekki mín orð, að þetta ástand stafaði eingöngu af kosningafyrirkomulaginu, heldur vildi ég benda á, að þarna væru tvö lönd, þar sem mismunandi „princip“ væri í kjördæmaskipun og kosningafyrirkomulagi. Í öðru landinu, þar sem þetta flokka„princip“ væri elt út í yztu æsar, eins og hv. þm. vill gera, þar væri þingræðið farið forgörðum, en í hinu landinu ekki. Það er a. m. k. ástæða til að ætla, að þetta geti haft einhver áhrif á, að svona er komið, án þess að ég fullyrði neitt um það, að beint orsakasamband sé þar á milli, því að um það get ég eða hv. 3. þm. Reykv. vitanlega ekki dæmt. Hitt er ég í engum vafa um, að það er leið til að leiða þá þjóð inn í harðvítuga flokkabaráttu, að miða eingöngu við flokkslegt jafnrétti, en ganga alveg framhjá réttinum til að velja mann eftir því, hvert álit menn hafa á honum persónulega.
Þetta er skoðun, sem hefir komið fram víðar en hér á landi. Erlendir stjórnmálamenn hafa líka haldið þessu fram, t. d. von Papen. Hann kvartaði undan því í fyrra, að ekkert tillit væri tekið til þess, á hvaða manni persónulega kjósendur hefðu mest álit, en aðeins einblínt á flokksfylgið, svo að menn yrðu að sætta sig við hvaða labbakút sem væri.
Hv. 3. þm. Reykv. mótmælti því, að Sjálfstfl. sem slíkur hefði nokkurn tíma staðið á þeim grundvelli að vilja hafa stór kjördæmi með hlutfallskosningum: Hann sagði, að um þetta hefði verið ágreiningur innan flokksins. Ég skal ekki neita því, en hitt held ég, að sé nægilega sannað sögulega, að um þetta voru samningar milli Sjálfstfl. og Alþfl. 1931, að breyta skyldi kjördæmaskipuninni í þessa átt. Þessu hafa jafnaðarmenn aldrei neitað, en sjálfstæðismenn hafa alltaf þrætt fyrir það. Af þessu hljóta menn að draga þá ályktun, að sjálfstæðismenn skammist sín fyrir þessa samninga, en hinir ekki. (PO: Þetta er rakalaus lygi. Forseti hringir).