26.05.1933
Efri deild: 81. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2807 í B-deild Alþingistíðinda. (4546)

59. mál, stjórnarskipunarlög

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Öllum þingheimi er nú þegar svo kunn saga þessa máls, að ég hirði ekki um að rekja hana hér. Ég vil aðeins óska þess, að málinu verði vísað til hv. stjskrn. að aflokinni þessari umr.