29.03.1933
Neðri deild: 39. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 550 í C-deild Alþingistíðinda. (4684)
132. mál, bæjarútgerð Reykjavíkur
Pétur Halldórsson [óyfirl.]:
Þá þarf a. m. k. að vera búið að leggja þá menn að velli pólitískt, sem hafa valdið því, að þessi atvinnugrein er að fara um koll hér. En viðvíkjandi því, að ráðstafanir hafa verið gerðar, eins og hv. frsm. sagði, til þess að athuga, hvernig og með hvaða kjörum mætti fá togara á leigu á yfirstandandi vertíð, þá var það eingöngu með það fyrir augum að greiða götu þeirra, sem vildu ganga inn á tilboð, sem bæjarstj. kynni að fá í þessu efni, og hagnýta sér þau, ef brúkleg skip væru fáanleg frá útlöndum.
Annars vil ég bæta því við, að um þetta spursmál hafa gengið dómar oft og margsinnis í bænum, bæði um socialistíska útgerð og einkaútgerð, og til þessa hafa þeir verið í minni hluta, sem hafa viljað socialistíska útgerð hér í Reykjavík. Og svo mun það verða framvegis, ef svo stefnir, sem nú horfir.