19.04.1933
Neðri deild: 53. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 553 í C-deild Alþingistíðinda. (4694)
134. mál, jarðræktalög
Pétur Ottesen [óyfirl]:
Ég þarf ekki að bæta miklu við mína fyrri ræðu, en vil aðeins benda á, að það er alltaf vissari 1 kráka í hendi en 10 í skógi, og nú höfum við tryggingu fyrir því, að gott samkomulag hefir átt sér stað undir þessu fyrirkomulagi, og það er betra heldur en spádómur hv. þm. Mýr. um jafngóða eða enn betri sambúð. (BÁ: Það verður betra, ef frv. verður samþ.). Nei, það verður alls ekki betra og getur ekki orðið betra, þó að hv. þm. reyni að knýja fram þessa breyt. gegn ákveðinni mótstöðu, ef til vill með eins atkv. meiri hl. Auk þess er mótspyrna fyrir hendi meðal beggja aðila. (BÁ: Á búnaðarþinginu greiddi einn atkv. á móti og 2 sátu hjá). Nei, það voru 3 á móti; ég þarf ekki að láta hv. þm. fræða mig um þessa atkvgr.; ég veit vel um hana, enda er hún ekkert leyndarmál. Auk þess sat n. á rökstólum síðastl. vetur til þess að gera till. um skipulag Búnaðarfél. (BÁ: Störfunum hefir verið frestað um óákveðinn tíma). Ef svo er, þá bætist enn ein röksemd við til þess að bíða einnig hér.