27.02.1933
Efri deild: 11. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 600 í C-deild Alþingistíðinda. (4780)

41. mál, eignarnámsheimild á afnotarétti landsvæðis úr Garðalandi

Páll Hermannsson:

Ég vil upplýsa það, að það er ekki af kvíða fyrir að vinna að þessu máli, að ég hefi stungið upp á, að málinu verði vísað til allshn. Eins og ég áður sagði, tel ég þetta mál að mestu og öllu sama málið og hér var fyrir d. í fyrra og d. þá vísaði til allshn., og býst ég við, að d. sýni það samræmi að vísa málinu aftur til allshn., nú þegar á þetta hefir verið bent. Þótt málið sé að sumu leyti landbúnaðarmál, geri ég ráð fyrir, að allshn. geti fengið alla þá faglegu aðstoð, sem hún er í þörf fyrir, hjá trúnaðarmönnum Búnaðarfélagsins.