01.06.1933
Efri deild: 86. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 616 í C-deild Alþingistíðinda. (4792)

41. mál, eignarnámsheimild á afnotarétti landsvæðis úr Garðalandi

Bjarni Snæbjörnsson:

Ég vildi aðeins benda á það, að falli þetta allt í skaut Garðhverfinga, er opin leið fyrir þá og Hafnfirðinga að rugla saman reytum sínum. Það hefir oft verið talað um, að réttast væri að gera þetta, og er þá sama, í hvorra hlut landið fellur.